Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Heilsugæsla Hofsstaðaskóla er á vegum Heilsugæslunnar í Garðabæ, sími 513-5500.
Skólahjúkrunarfræðingur er Þóra Hrönn Þorgeirsdóttir
Netfang: hofsstadaskoli@heilsugaeslan.is
Viðverutímar hjúkrunarfræðings eru:
Fyrir hádegi mánudaga, þriðjudaga, miðvikudag og fimmtudaga.
Helstu verkefni skólahjúkrunarfræðings eru:
- Reglulegar heilsufarsathuganir og ónæmisaðgerðir
- Heilbrigðisfræðsla og ráðgjöf
- Eftirlit með húsakynnum og aðbúnaði
Skólalæknir er Gerður A. Árnadóttir.
Helstu áherslur í heilsuvernd skólabarna eru fræðsla og heilsuefling, bólusetningar, skimanir og skoðanir og umönnun veikra og slasaðra barna ásamt ráðgjöf til nemenda, fjölskyldna þeirra og starfsfólks skólans.
Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foreldra/forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð nemenda að leiðarljósi. Skólahjúkrunarfræðingur situr á fundi nemendaverndarráðs einu sinni í mánuði. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Ef óhapp eða slys verða á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Þurfi nemandi að fara á heilsugæslustöð eða slysadeild skulu foreldrar/forráðamenn fara með barninu. Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af skólaheilsugæslunni.
Hér á heilsuveru má finna nánari upplýsingar um heilsuvernd skólabarna
Fræðsluefni-ráð til foreldra